Skilmálar Full aðild
Almennt
Betri Stofan, á 7 hæð í Firðinum í Hafnarfirði, er staður sem er hugsaður fyrir fólk sem getur unnið eða komið saman í glæsilegu húsnæði með útsýni yfir sjóinn og miðbæ Hafnarfjarðar.
Með aðgangsappi hefur viðskiptavinur aðgang að vinnustofunni, opnum svæðum, fundarrýmum og veitingaaðstöðu á almennum opnunartíma Betri Stofunnar. Aðgangsupplýsingar eru trúnaðarmál sem ekki má deila með öðrum.
Hvert aðgangskort veitir viðskiptavini heimild til að bjóða 3 gestum með sér á staðinn, undantekningar eru þegar fundarrými eru bókuð.
Bókunarkerfi fyrir fundarrými er á vefsíðunni Noona.is einnig má senda tölvupóst á betristofan@betristofan.com Við hvetjum viðskiptavini til að bóka tímanlega til að tryggja sér lausan tíma. Innifalið í aðild eru 4 klukkutímar per mánuð í afnot af fundarherbergjum, eftir það gildir gjaldskrá Betri Stofunnar.
Betri Stofan er opin fyrir viðskiptavini á almennum afgreiðslutíma samkvæmt opnunartíma á heimasíðunni www.betristofan.com Betri Stofan áskilur sér rétt til að loka tvisvar í mánuði vegna einkasamkvæma og breyta opnunartíma í júlí mánuði v/sumarleyfa viðskiptavina, í desember v/jólafrís og annara hátíðisdaga. Milli kl 9-16 virka daga er viðskiptavinum boðið upp á kaffi og te án endurgjalds. Aðrir kaffidrykkir og veitingar eru samkvæmt verðskrá Betri Stofunnar.
Umgengni og reglur
Reglur Betri Stofunnar eru kurteisi og virðing við meðlimi, starfsfólk og aðra gesti. Við viljum skapa notalega stemningu í umhverfi þar sem öllum líður vel og njóta þess að eiga góða stund saman. Við að sjálfsögðu elskum börn og dýr en biðjum ykkur um að taka þau ekki með. Hver aðild veitir meðlimi heimild til að bjóða með sér 3 gestum og bera þeir ábyrgð á sínum gestum. Það er 22 ára aldurstakmark hjá okkur og biðjum við ykkur um að virða það þegar taka á með sér gesti. Öll meðferð ólöglegra vímuefna er einnig bönnuð innan veggja Betri Stofunnar. Brot á reglum getur leitt af sér uppsögn á aðild.
Svo allir geti notið þess að vinna á Betri Stofunni biðjum við meðlimi um að sýna tillitsemi og nota heyrnatól þegar verið er í myndsamtölum og hlustað er á músík, eins er gott að passa að hringistillingin á síma sé ekki mjög hátt stillt.
Rafræn vöktun er í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nr. 77/2000) en megintilgangur með öryggismyndavélunum er að vernda hagsmuni viðskiptavina.
Samningur
Binditími á aðild er 3 mánuði. Að þeim tíma loknum framlengist hann sjálfkrafa og verður þaðan í frá uppsegjanlegur með eins mánaða fyrirvara. Það er á ábyrgð meðlima að tilkynna ef greiðslukort er ekki lengur virkt (stolið, útrunnið eða týnt) og óska eftir breytingu á greiðslukorti. Uppsögn á aðild skal berast á betristofan@betristofan.com
Meðlimum Betri Stofunnar er ekki heimilt að framselja aðild sína til þriðja aðila. Þá getur meðlimur ekki geymt rétt sinn til skemmri eða lengri tíma með því að leggja inn aðild sína.
Verð er 18.476 kr á mánuði per mann með vsk og greiðist fyrirfram.