Tækniupplýsingar

HID aðgangsapp

Eftir skráningu í aðild fær meðlimur sendan tölvupóst frá HID með upplýsingum um hvernig á að hlaða niður appinu og kóða sem þarf að setja inn í appið sjálft til að virkja það. Við að smella á kóðan í tölvupóstinum áttu sjálfkrafa að hoppa yfir í HID appið og þar þarf bara að smella í reitinn þar sem kóðinn á að vera. Eftir nokkrar sekúndur birtist svo “notification” neðst í appinu um að þú sért með nýtt mobild ID.

Þegar Betri Stofu lógóið birtis á skjánum þá er appið virkt.

Spurningar og svör

Kóðinn virkar ekki:

  • Bara er hægt að nota hvern kóða einu sinni.

  • Ekki gera copy/paste á kóðan úr tölvupósti yfir í appið, við það breytist stundum kóðinn og verður ekki sá sami og er í tölvupóstinum.

  • Ef þú hefur sett inn kóðan og appið biður þig aftur um kóða sem svo ekki virkar, og það stendur “back” efst í horninu þá ertu búinn að setja upp aðganginn og appið heldur að þú sért að búa til annan aðgang. Þá á að smella á “back” og þá ætti Betri Stofu lógið að sjást.

  • Ef kóðinn er útrunninn (hann gildir í 74 klukkutíma frá því hann er sendur) þá þarf að senda okkur tölvupóst og óska eftir nýjum kóða.

Aðangurinn er horfinn úr símanum:

  • Líklegast ertu þá kominn með nýjan síma og þarft að senda tölvupóst á geirthrudur@betristofan.com og óska eftir nýjum kóða. Sama á við ef það hefur verið gert factory reset í símanum þínum og öðrum einstaka uppfærslum.

Ég fæ ekki tölvupóst frá HID með kóðanum:

  • Ath hvort tölvupósturinn sé í junk/spam/social

  • Ath hvort rétt netfang hafi verið skráð í upphaflegri umsókn á aðild.

  • Ef skráð tölvupóstfang er hjá stóru fyrirtæki/sveitarfélagi þá eru þau stundum með sterka vírusvörn og flokka póstinn sem virus og hleypa honum ekki gegn. Þá má senda okkur tölvupóst og óska eftir því að annað persónulegt tölvupóstfang séð skráð eins og td Gmail, Hotmail eða annað og þá sendum við aðganginn á það tölvupóstfang.

Drykkjarkortið

Við skráningu á aðild fær meðlimur sendan tölvupóst frá Wise með rafræna drykkjarkortinu. Það er auðvelt í uppsetningu og best er að smella á “hér” í textanum eða á linkinn sem er þar undir. Drykkjarkortið fer svo í walletið í síman þinn.

Drykkjarkortið endurnýjast 10. hvers mánaðar sjálfkrafa svo það er einungis sent í eitt skipti á hvern meðlim og uppfærist svo að sjálfkrafa eftir það.

Spurningar og svör

Afhverju er drykkjarkortið horfið út walletinu hjá mér:

  • Í einsktaka símum þá fer drykkjarkortið þegar það klárast í “expired passes” þá er nóg að skrolla neðst í walletið finna kortið og virkja það aftur með að velja “unhide”

  • Ef skipt er um síma á drykkjarkortið að flytast yfir í nýja síman eins og greiðslukortin gera en ef ekki þá er hægt að finna tölvupóstinn frá Wise og setja upp kortið aftur.

Ég gerðist meðlimur í “gær” og fékk sent drykkjarkort sem rennur út á morgun:

  • Öll drykkjarkort endurnýjast 10. hvers mánaðar burt séð frá því hvernær mánaðaðarins þú gerist meðlimur.

Ég fæ ekki tölvupóst frá Wise með drykkjarkortinu:

  • Ath hvort tölvupósturinn sé í junk/spam/social

  • Ath hvort rétt netfang hafi verið skráð í upphaflega umsókn á aðild.

  • Ef skráð tölvupóstfang er hjá stóru fyrirtæki/sveitarfélagi þá eru þau stundum með sterka vírusvörn og flokka póstinn sem virus og hleypa honum ekki gegn. Þá má senda okkur tölvupóst og óska eftir því að annað persónulegt tölvupóstfang séð skráð eins og td Gmail, Hotmail eða annað og þá sendum við aðganginn á það tölvupóstfang.

Ég er ekki búin að fá drykkjarkortið fyrir þennan mánuð:

  • Drykkjarkortið endurnýjast 10. hvers mánaðar sjálfkrafa svo það er einungis sent í eitt skipti á hvern meðlim og uppfærist svo að sjálfkrafa eftir það.

  • Ef það er eldri dagseting á drykkjarkortinu er nóg að refresha það og þá ætti nýja dagsetniningin að birtast ásamt hversu marga drykki þú átt inni.