Skilmálar kvöld aðild

Almennt

Betri Stofan, á 7 hæð í Firðinum í Hafnarfirði, er staður sem er hugsaður fyrir fólk sem getur unnið eða komið saman í glæsilegu húsnæði með útsýni yfir sjóinn og miðbæ Hafnarfjarðar.

Með aðgangsappi hefur viðskiptavinur aðgang að opnum svæðum og veitingaaðstöðu frá kl 16 til lokunar miðvikudag til laugardags. Aðgangsupplýsingar eru trúnaðarmál sem ekki má deila með öðrum.

Betri Stofan er opin fyrir viðskiptavini á almennum afgreiðslutíma samkvæmt opnunartíma á heimasíðunni www.betristofan.com Betri Stofan áskilur sér rétt til að loka tvisvar í mánuði vegna einkasamkvæma og breyta opnunartíma í júlí mánuði v/sumarleyfa, í desember v/jólafrís og annara hátíðisdaga.

Umgengni og reglur

Reglur Betri Stofunnar eru kurteisi og virðing við meðlimi, starfsfólk og aðra gesti. Við viljum skapa notalega stemningu í umhverfi þar sem öllum líður vel og njóta þess að eiga góða stund saman. Við að sjálfsögðu elskum börn og dýr en biðjum ykkur um að taka þau ekki með. Hver aðild veitir meðlimi heimild til að bjóða með sér 3 gestum og bera meðlimir ábyrgð á sínum gestum. Það er 22 ára aldurstakmark hjá okkur og biðjum við ykkur um að virða það þegar taka á með sér gesti. Öll meðferð ólöglegra vímuefna er einnig bönnuð innan veggja Betri Stofunnar. Brot á reglum getur leitt af sér uppsögn á aðild.

Rafræn vöktun er í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nr. 77/2000) en megintilgangur með öryggismyndavélunum er að vernda hagsmuni viðskiptavina.

Drykkjarkort

Meðlimur fær 5 drykki á rafræna drykkjarkortið sitt 10. hvers mánaðar óháð því hvernær aðild er keypt. Ekki er hægt að safna drykkjum milli mánaða heldur fyrnast ónotaðir drykkir við endurnýjun næsta mánaðar.

Samningur

Binditími á aðild er 3 mánuðir. Að þeim tíma loknum framlengist hann sjálfkrafa og verður þaðan í frá uppsegjanlegur með eins mánaða fyrirvara. Það er á ábyrgð meðlims að tilkynna ef greiðslukort er ekki lengur virkt (stolið, útrunnið eða týnt) og óska eftir breytingu á greiðslukorti sem er skráð fyrir greiðslu á aðild. Uppsögn á aðild skal berast á betristofan@betristofan.com

Meðlimum Betri Stofunnar er ekki heimilt að framselja aðild sína til þriðja aðila. Þá getur meðlimur ekki geymt rétt sinn til skemmri eða lengri tíma með því að leggja inn aðild sína. Aðeins er hægt að hafa einn aðgang á hverja aðild.

Verð er 5.990 kr á mánuði per mann með vsk og greiðist fyrirfram.